Kuldi og gjóla

Allir vegir á Norðurlandi vestra eru greiðfærir í dag, svo sem verið hefur undanfarna daga. Töluvert hefur rignt síðasta sólarhringinn og ætti því gróðurinn að taka vel við sér. Veðurspáin fyrir Strandir og Norðurland vestra hljóðar upp á norðaustan 10-15 m/s og rigningu eða slyddu, hægari og úrkomulítið síðdegis á morgun. Hiti 1-7 stig. Enn verður því einhver bið á tveggja stafa hitatölu.

Fleiri fréttir