Kveikt á norska jólatrénu á Blönduósi

Kveikt verður á jólatrénu við Blönduóskirkju sunnudaginn 8. desember að lokinni aðventumessu í kirkjunni um kl. 17:00. Að venju er það vinabærinn Moss í Noregi sem færir Blönduósbæ jólatréð að gjöf.

Sungin verða jólalög og fregnir herma að jólasveinar verði komnir á stjá. Húnahornið segir frá þessu.

Fleiri fréttir