Kvennablak á Blönduósi
Í kvöld er ætlunin að byrja með blaktíma í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi og munu þriðjudagarnir vera ætlaðir fyrir þá iðkun í vetur frá klukkan 19.00- 20.00.
Það eru þær Harpa Hermannsdóttir og Ragnheiður Blöndal sem standa fyrir blakinu og hvetja þær alla til að koma og prófa skemmtilega íþrótt. Það mun ekki vera skylda að kunna blak þó það sé efalaust kostur.