Kvennakórinn Sóldís syngur á alþjóðlegum nótum síðasta vetrardag

Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika í Frímúrarahúsinu á Sauðárkróki á morgun, síðasta vetrardag, 18. apríl kl. 20:30. Kórinn hefur verið starfandi í hálft annað ár en hann var stofnaður þann 2. júní 2010. Flestar konurnar koma úr Skagafirði en einnig úr Austur-Húnavatnssýslu. Kórinn hefur verið með alþjóðlegt þema í vetur, í bland við íslenska tónlist og syngja á tíu tungumálum. Lögin sem þær syngja eru á frönsku, spænsku, finnsku, rússnesku, hebresku, svahílí, latínu, ensku, sænsku og íslensku.

Í fyrra sungum við á fimm tungumálum og það var einskonar áskorun að bæta nokkrum tungumálum við. Sum lögin eru miklir tungubrjótar og hefur verið krefjandi að læra þau. Erfiðast hefur verið að ná tökum á rússnesku og finnsku lögunum. Franskan og svahílí var ekkert mál og spænskan er ljúf og mjúk á tungu,“ sagði Drífa Árnadóttir í viðtali við Feyki í febrúar sl.

Ólafur Hallgrímsson sótti tónleika þeirra í Miðgarði sem haldnir voru á konudaginn og fór fögrum orðum yfir Kvennakórnum í aðsendri grein sinni í Feyki þann 1. mars.

Sem leikmanni í faginu virtist mér tónleikarnir takast vel. Yfir þeim var ferskur blær. Kórinn býr greinlega yfir góðum raddstyrk og sönggleðin var áberandi, sem hvort tveggja naut sín vel í Miðgarði, innkomur voru öruggar og styrkleikabreytingar sömuleiðis og auðheyrt að stjórnandinn, Sólveig Sigríður Einarsdóttir, hefur alla þræði í hendi sér. Undirleikur Rögnvaldar Valbergssonar studdi við flutninginn af öryggi og smekkvísi, svo sem vænta mátti frá hans hendi. Útkoman á tónleikunum verður að teljast góður árangur, einkum þegar þess er gætt, hve kórinn hefur starfað í skamman tíma, og er ástæða til þess að óska kórfólki til hamingju með það allt.“

 

Fleiri fréttir