Kvennatölt Norðurlands verður á skírdag
Kvennatölt Norðurlands fer fram 24.mars - Skírdag og hefst klukkan 18:00 í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Keppt verður í þremur flokkum, Opnum flokki, minna vönum og 17 ára og yngri. Veitt verður einnig verðlaun fyrir flottasta parið og bestu útfærslu á þema, en þemað í ár eru páskarnir/gulir.
Skráning þarf að berast fyrir klukkan 22:00, þriðjudaginn 22. mars nk., látið endilega fylgja með uppá hvora höndina er riðið.
Skráningargjald er 1500.-
Staðfesting og skráning sendist á saragisladottir@gmail.com
Aðgöngumiði á viðburðinn kostar 1000.-
Landsbankinn gefur verðlaunagripina.
Aðrir styrktaraðilar eru:
Rúnalist, Eftirlæti, Snyrtistofan Táin og Eftirlæti, VILKO o.fl. eru að melda sig inn.
/fréttatilkynning