Kvennatölt – skráningarfrestur lengdur
Kvennatölt Norðurlands verður haldið í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki á skírdag og hefst klukkan 17:00. Keppt verður í þremur flokkum: opnum flokki, flokki minna vönum og 21 árs og yngri. Allra síðasti skráningarfrestur rennur út á miðvikudagskvöldið 4. apríl.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er skráning í slakara lagi og ástæða til að hvetja allar konur sem hafa hest til umráða að skrá sig í þann flokkinn sem hentar.
Skráning fer fram á fritz@mi.is