Kvikmynd um Barnaból, ljósmyndir af mannlífinu og nýjir heimar í opnu húsi hjá Nesi
Nes listamiðstöð á Skagaströnd ætlar að vera með opið hús á morgun, fimmtudaginn 26. apríl, frá kl. 16 - 19. Þá er áhugasömum boðið að hitta listamenn aprílmánaðar og skoða listaverk þeirra. Samkvæmt heimasíðu Neslistar er vonast er til þess að sem flestir láti sjá sig, fái sér kaffi og snarl, og njóti verka listamannanna.
Þar verður kvikmyndin Barnabol 35 eftir AnneMarie van Splunter til sýningar kl. 16:00, 16:30, 17:00, 17:30, 18:00, 18:30. Myndin er gerð af tilefni 35 ára afmæli leikskólans og samstarfsverkefni skólans og Nes listamiðstöðvar en Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli styrkir verkefnið. Markmið AnneMarie var að festa á filmu alla núverandi og fyrrverandi nemendur og starfsfólk Barnabóls.
Rossella Piccinno, kvikmyndagerðarkona og ljósmyndari, hefur verið á ferð og flugi um allan bæinn að mynda mannlífið og alls konar viðburði.
Merete Röstad notar margbreytilegar listaðferðir en vinnur núna einkum með ljósmyndir.
Alexandra Häberli sem málar og notar klippimyndir til að skapa nýja heima á veggjum listamiðstöðvarinnar.
Léa Donnan býr til ísskúlptúra og notar margvísleg efni tengd iðnaði.
Heimildir:
Neslist.is
Skagastrond.is