Kvikmyndahátíðin The Weight of Mountains

Kvikmyndahátíðin The Weight of Mountains er fyrsta kvikmyndahátíðin sem haldin er á Skagaströnd. Dagana 21.-23. febrúar kemur bíóið aftur til Skagastrandar. Þema hátíðarinnar, sem er í umsjón Melody Woodnutt og Tim Marshall frá Nes listamiðstöð, er „Maðurinn og umhverfi hans“. Allar myndirnar, sem sýndar verða á hátíðinni, fjalla um það hvernig umhverfið hefur áhrif á okkur og hvernig við höfum áhrif á umhverfið.

 

Tíu erlendir kvikmyndagerðarmenn hafa dvalið í Nes listamiðstöð á Skagaströnd í þrjá mánuði og unnið að undirbúningi þessarar kvikmyndahátíðar. Meðal annars áttu listamennirnir að gera stuttmynd á Skagaströnd um reynslu sína af gagnvirkum áhrifum íbúanna og umhverfisins.

Frumsýning þessara stuttmynda verður laugardaginn 22. febrúar, kl. 19.00, í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd.

Af öðrum viðburðum á hátíðinni má nefna handverksmarkað, kaffihús með listamönnunum þar sem þeir sitja fyrir svörum, sérstakar sýningar fyrir börn og svo „alvöru bíókvöld“ þar sem vinsæl stórmynd verður sýnd.

Formleg opnun kvikmyndahátíðarinnar verður föstudaginn 21. febrúar, kl. 19.00.

Annar stjórnandi hátíðarinnar, Melody Woodnutt, segir svo:

„Það er svo spennandi að sjá hvernig kvikmyndagerðarfólkið okkar hefur tengst samfélaginu á Skagaströnd og ég er svo ánægð yfir því að við getum tjáð reynslu okkar í stuttmyndunum þessa helgi. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir okkur til að gefa íbúunum eitthvað í staðinn; þeir hafa tekið okkur opnum örmum."

Aðgangur að kvikmyndahátíðinni er ókeypis.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar og fleira má sjá á vefsíðunni: www.twom.is.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir