Kvikmyndasýningar á Skagaströnd - Jón og séra Jón

NES Listamiðstöð, Rannsóknasetur HÍ á Norðurlandi vestra og Kántrýbær ætla að standa fyrir kvikmyndasýningum á Skagaströnd. Sýningarnar verða í Kántrýbæ og mun fyrsta sýningin verða sýnd í kvöld kl. 21:30.

Myndin sem sýnd verður í kvöld er heimildarmyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson. Fram kemur á heimasíðu Nes listamiðstöðvar að heimildarmyndin vann áhorfendaverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar í vor og var sýnd í kvikmyndahúsum við miklar vinsældir. Miðaverð er 1250 kr.

Á Neslist.is segir nánar um myndina:

„Séra Jón Ísleifsson hefur verið sóknarprestur í Árnesi Ströndum í 12 ár. Hann lifir lífinu á sinn eigin sérstæða máta og af honum eru margar sögur bæði sannar og ósannar. Í kjölfar langvinnra deilna innan safnaðarins er svo komið að mikill meirihluti sóknarbarna hefur skrifað undir vantraust á séra Jón og lýst því yfir að þau vilji ekki að hann starfi lengur sem sóknarprestur í Árnesprestakalli. Er séra Jón óhæfur prestur? Eða eru aðrir kraftar að verki? Hvað sem því líður er séra Jón maður sem er staddur á miklum tímamótum.“

Fleiri fréttir