Kynning á Bogfimi á Hvammstanga í dag
Samkvæmt frétta á nordanatt.is Í dag, fimmtudaginn 7. júlí verður kynning á bogfimi haldin í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Verður kynningin í boði USVH og Umf. Kormáks og hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 16
Indriði Grétarsson frá Skotfélaginu Ósmann á Sauðárkróki verður leiðbeinandi á kynningunni en hann hefur unnið mikið við kynningu á bogfimigreininni hér heima á undanförnum árum. Bæði börn og fullorðnir velkomnir.