Kynning á háskólanámi í Noregi
Fulltrúar Háskólans í Norður-Þrændalögum (HiNT) í Mið-Noregi eru á leiðinni til Íslands annað árið í röð, í þeim tilgangi að kynna spennandi háskólanám í Margmiðlunartækni og Tölvuleikjahönnun. Næstkomandi þriðjudag, 11. mars, verður haldin kynning á náminu í Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki, kl. 11:20, auk þess sem haldinn verður opinn kynningarfundur í VMA á Akureyri, mánudaginn 10. mars, kl. 19.00 og þangað eru allir velkomnir.
Í fréttatilkynningu frá skólanum segir að ekkert sambærilegt nám sé í boði á Íslandi og að Íslendingar hafi sýnt námstilboði norska háskólans mikinn áhuga, enda er nám af þessu tagi afar kostnaðarsamt í flestum öðrum löndum. Háskólinn er vel tækjum búinn og kennarahópurinn er alþjóðlegur og býr yfir margra áratuga reynslu af svo til öllu sem tengist bæði tölvuleikjahönnun og margmiðlunartækni.
„Nemendur fá að nokkru marki að velja sér áhugasvið og því finna allir eitthvað við sitt hæfi. Meðal viðfangsefna nemenda er þrívíddarteikning, kvikmyndun, ljósmyndun, hljóðvinnsla, forritun, leikstjórn, framleiðsla og ritstjórn, svo nokkuð sé nefnt,“ segir í tilkynningunni.
Í fyrra var námið aðeins kynnt í Reykjavík og nágrenni. Í haust settust 7 íslenskir nýnemar á skólabekk og í ár vonast fulltrúar skólans til að fá til liðs við sig fleiri efnilega Íslendinga.