Kynning á Vatnsdælu á refli
Jóhanna E. Pálmadóttir heldur kynningu á menningarverkefninu Vatnsdæla á refli fyrir félagskonur í Virkju fimmtudaginn 27. janúar kl. 20:00 í Kvennaskólanum á Blönduósi.
Verkefnið Vatnsdæla á refli er hugarfóstur Jóhönnu E. Pálmadóttur, bónda og handavinnukennara á Akri í Austur-Húnavatnssýslu og er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Ístex, Textílsetur Íslands og félagið Landnám Ingimundar gamla og Félag ísl. teiknara.
Vatnsdæla er myndræn saga af ástum, átökum og erjum, ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9.- til 11.öld.
Verkefnið Vatnsdæla á refli á fyrirmynd í Bayeux-reflinum sem saumaður var á 11. öld. Markmiðið er að endurvekja forna sögu með frumlegum og nýstárlegum hætti í samstarfi við unga hönnuði samtímans. Samhliða því eru fornri útsaumsgerð, refilsaumnum, gerð skil.
