Kynningar og íbúafundir um dreifnám í A-Hún
Almennir borgarafundir um dreifnám í A-Hún verða haldnir næstu tvo daga, sá fyrri kl. 20:00 í Fellsborg Skagaströnd á morgun 6. mars og sá síðari á Blönduósi fimmtudaginn 7. mars kl. 18:00. Allir íbúar í A-Hún eru velkomnir, en foreldrar elstu nemenda grunnskólans eru sérstaklega hvattir til að mæta til að kynna sér þessa leið við byrjun framhaldsnáms.
Kynningar og íbúafundur vegna stofnunar framhaldsdeildar (dreifnáms) í Austur Húnavatnssýslu fyrir nemendur níunda og tíunda bekkja og foreldra/forráðamenn þeirra verður einnig haldinn þann 7. mars. Nemendur mæta kl. 13:00 í Félagsheimilið á Blönduósi og fá kynningu á fyrirhuguðu námi og þeim gefinn kostur á að verða virkir þátttakendur í mótun og undirbúningi dreifnámsins.
Þar mun Þorkell V. Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, fara ítarlega yfir starfsemi deildarinnar. Rakel Runólfsdóttir umsjónarmaður dreifnáms FNV á Hvammstanga og nemendur þaðan kynna hvernig til hefur tekist með uppbyggingu dreifnámsins á Hvammstanga. Fulltrúar sveitarfélaga í A-Hún. munu skýra frá undirbúningi heima í héraði. Auk kynninganna verður tekið við fyrirspurnum frá fundargestum.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu FNV