Kynningarfundir Samfylkingarinnar á Norðurlandi vestra
Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi heldur flokksval um fjögur efstu sætin á framboðslista fyrir alþingiskosningarnar 2013. Fimm frambjóðendur eru í framboði og valið fer fram með póstkosningu 12.-19. nóvember. Flokksvalið er eingöngu opið fyrir flokksfélaga með lögheimili í kjördæminu. Hægt er að skrá sig í flokkinn á samfylkingin.is, undir flipanum „Taktu þátt“ fyrir 5. nóvember nk. til að taka þátt í flokksvalinu.
Haldnir verða 13 kynningarfundir víðs vegar um kjördæmið, þar af á þremur stöðum á Norðurlandi vestra; Hvammstanga, Skagaströnd og Sauðárkróki. Þar munu frambjóðendur kynna sig fyrir kjósendum og eru allir boðnir velkomnir á fundina.
Mánudagur 5. nóvember
- Hvammstangi, Félagsheimilið kl. 20.00
Miðvikudagur 7. nóvember
- Skagaströnd, Kántrýbær kl. 17.00
- Sauðárkrókur, Kaffi Krókur kl. 20.00