Kynningarfundur um átaksverkefni í ferðaþjónustu

Ferðamálafélag A-Húnvetninga hefur það hlutverk að efla ferðaþjónustu á sínu svæði, enda er ferðaþjónustan vaxandi atvinnugrein sem skapar miklar tekjur um allt land.

Á vef Húna.is kemur fram að Ferðamálafélagið og Þekkingarsetrið á Blönduósi með stuðningi frá Byggðasamlagi um menningu og atvinnumál, hafa sameiginlega ákveðið að ráðast í tímabundið verkefni og hafa fengið G. Ágúst Pétursson til að stýra því verki. Hann hefur m.a. stýrt verkefnum fyrir Útflutningsráð sem miðuðu að því að auka samstarf hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Ennfremur margra ára reynsla af því að standa fyrir Frumkvöðlasmiðjum og hafa nokkrar verið haldnar á svæðinu.

Eftirfarandi eru helstu markmið verkefnisins:

- Stuðla að auknu samstarfi ferðaþjónustuaðila á svæðinu.

- Þróa og halda „hugmyndasmiðju“ sem einkum er ætluð aðilum í ferðaþjónustu og handverki, bæði þeim sem þegar eru starfandi eða hyggja á slíka starfsemi. Til stendur að hittast einu sinni í viku í þrjá tíma (frá 17:00-20:00) og hefst smiðjan fimmtudaginn 6. febr. nk.  Hugmyndasmiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu.

- Koma á laggirnar litlum vinnuhópum aðila þar sem áhersla verður lögð á að ræða möguleika á frekara samstarfi, þróa nýjar hugmyndir og ræða bæði möguleika og hindranir sem kunna að vera til staðar.

- Styrkja samstarf við nágrannasvæðin, Húnaþing vestra og Skagafjörð.

- Setja saman og viðhalda gagnagrunni yfir ferðaþjónustu og handverksfólk og aðra sem þjónusta ferðafólk á svæðinu.

- Þróa heimasíðu fyrir ferðaþjónustu í A-Hún. en einnig þarf að skoða kosti eins og kynningarbækling, vandað kort, skilti o.fl.

Efnt verður til kynningarfundar á verkefninu þriðjudaginn  21. jan. kl 17:00 í fundarsal Samstöðu á Blönduósi, og vill ferðamálafélagið hvetja alla sem eiga þess kost að mæta. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands mætir á fundinn. Vinsamlegast staðfestið þátttöku á tölvupóstfangið agustp@centrum.is.

Fleiri fréttir