Kyrrð og ró í jólasnjó

Á morgun föstudaginn 16. desember verður haldin kyrrðarstund í Miklabæjarkirkju í Skagafirði þar sem Vorvindar glaðir flytja hugljúf jólalög og önnur í aðdraganda jóla.

Í tilkynningu kemur fram að sr. Dalla Þórðardóttir flytji hugvekju og eru allir velkomnir. Frítt er inn og tilvalið að koma og njóta aðventunnar í kyrrð og ró.
Athöfnin hefst kl. 20.

Fleiri fréttir