Lærdómssamfélag í leik- og grunnskólum í Austur Húnavatnssýslu

Frá lokahátíð þróunarverkefnis um lærdómssamfélag sem haldin var á Húnavöllum. Mynd: felahun.is.
Frá lokahátíð þróunarverkefnis um lærdómssamfélag sem haldin var á Húnavöllum. Mynd: felahun.is.

Starfsmenn leik- og grunnskóla í Austur-Húnavatnssýslu hafa í vetur unnið að þróunarverkefni um lærdómssamfélag undir handleiðslu Önnu Kristínar Sigurðardóttur prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Starfsmenn fengu tækifæri til að dýpka þekkingu sína á áhugasviðum þvert á skóla og skólastig.

Á heimasíðu félags- og skólaþjónustu A-Hún. kemur fram að markmiðið með verkefninu í vetur hafi verið að skapa menningu lærdómssamfélags sem styður við samstarf, starfsþróun og gagnvirkt nám starfsmanna til að efla nám nemenda.

Haldin var lokahátíð á Húnavöllum þar sem þátttakendur sýndu afrakstur vetrarins en hóparnir lögðu meðal annars áherslu á mál og læsi, stærðfræði, upplýsingatækni, teymiskennslu og lýðheilsu og upplýsingamennt. Á felahun.is segir að verkefnin sem kynnt voru beri vott um grósku í skólastarfi á svæðinu.

„Í lok dags fengu starfsmenn að hlýða á fyrirlestur Ragnhildar Vigfúsdóttur markþjálfa sem nefnist „Hvort viltu vera gleðigjafi eða fýlupúki?“ Ragnhildur leitar í verkfærakistu jákvæðrar sálfræði þar sem talað er um styrkleika, jákvæðar tilfinningar og hamingjuaukandi aðgerðir í lífi og starfi,“ segir í frétt félags- og skólaþjónustunnar þar sem hægt er að nálgast fjölda mynda frá verkefnavinnunni. Sjá HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir