Lagt til að átta kjörstaðir verði í Skagafirði

Senn líður að kosningum. Myndin var tekin á kjörstað á Sauðárkróki þegar kosið var til Alþingis vorið 2013. Mynd: PF
Senn líður að kosningum. Myndin var tekin á kjörstað á Sauðárkróki þegar kosið var til Alþingis vorið 2013. Mynd: PF

Byggðaráð Svf. Skagafjarðar hefur lagt til að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga til Alþingis sem ráðgerðar eru 29. október 2016 verði eftirtaldir:Skagasel, Bóknámshús FNV, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg, Grunnskólinn á Sólgörðum, Varmahlíðarskóli og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

Einnig hefur sveitarstjórn samþykkt að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna alþingiskosninganna: að staðfesta kjörskrá og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar í sambandi við kosningar.

Fleiri fréttir