Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar ræðir um framlag til refaveiða.
Á fundi landbúnaðarnefndar Blönduósbæjar sem haldinn var í síðustu viku var rætt um áætlað framlag sveitarfélagsins til refaveiða sem skv. fjárhagsáætlun á að nema 250.000 krónum. Fram kom að ráðin grenjaskytta sveitarfélagsins hefur sagst ekki muni geta leitað öll þau greni sem þarf að leita, svo vel sé, fyrir þá upphæð.
Nefndin tók undir það álit og taldi óviðunandi ef ekki er hægt að fullleita svæðið og vinna þau greni sem finnast. Nefndin lagði því til að áætlað verði að leggja svipaða upphæð í verkið eins og í fyrra. Í fundargerð segir að nefndin minnir bæjarstjórn á í þessu samhengi að eyðing refa er lögbunin skylda sveitarfélaga.