Landbúnaðarsýningin Sveitasæla í Skagafirði 20. ágúst nk
Skagfirskir bændur og Reiðhöllin Svaðastaðir við Sauðárkrók blása til landbúnaðarsýningar og bændahátíðar í Skagafirði þann 20. ágúst nk. Líkt og undanfarin ár kallast hátíðin Sveitasæla og þar mun margt fróðlegt og skemmtilegt bera fyrir augu manna. Má þar nefna sveitamarkað, vélasýningu skagfirskra bænda og vélasala, húsdýragarð, leiktæki fyrir börn, kynningu á fyrirtækjum tengdum landbúnaði, fróðleik um fornar vinnsluaðferðir til sveita, smalahundasýningu, hrútasýningu, kálfasýningu, hæfileikakeppni gröfumannsins, keppni í dráttarvélaakstri, gæðingakeppni og bændafitness, auk þess sem öllum gestum verður boðið í grillveislu þar sem skagfirskir skemmtikraftar láta ljós sitt skína. Það er því óhætt að hvetja sem flesta til þess að taka daginn frá og sækja skagfirska bændur heim laugardaginn 20. ágúst.