Landsæfing sjór

Laugardaginn 17. september nk. verður Landsæfing á sjó haldinn á Húnaflóa. Æfingin verður gerð út frá Skagaströnd og eru það sveitirnar þrjár á svæði 9, Húnavatnssýslum, sem sjá um skipulagningu æfingarinnar undir forystu björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd.

 

Fjölbreytt verkefni verða fyrir allar tegundir hópa s.s. björgunarskip, harðbotnabáta og slöngubáta. Einnig verða sett upp fluglínutækjaverkefni og köfunarverkefni. Sveitir sem skrá sig í fluglínuverkefni þurfa að hafa sín fluglínutæki með sér.

Áætlað er að æfingin hefjist kl 7:30 og ljúki um kl. 17. Að loknum frágangi verður þátttakendum boðið í grillveislu.

/ hunar.123.is

Fleiri fréttir