Landsbankinn heimsækir 25 sveitarfélög á landsbyggðinni

Landsbankinn heimsótti í maí og júní 25 sveitarfélög á landsbyggðinni og átti fjölda funda á hverjum stað með  sveitarstjórnarmönnum atvinnuþróunarfélögum og forsvarsmönnum í atvinnulífi. Markmið fundanna var að kanna hvernig bankinn getur komið frekar á móts við heimamenn í uppbyggingu atvinnulífs á hverju svæði fyrir sig, efla tengsl bankans við viðskiptavini og nærsamfélagið og kynnast þeim hugmyndum og áformum sem efst eru á baugi.

Um 300 manns komu til fundar við bankann. Helstu yfirmenn Landsbankans,  ásamt útibússtjórum á hverjum stað eða svæði áttu viðræður við  forsvarsmenn á Akureyri, Húsavík, Snæfellsbæ, Grundarfirði, Stykkishólmi, Akranesi, Borgarnesi, Fljótsdalshéraði, Fjarðabyggð, Fljótsdalshreppi, Vopnafirði, Seyðisfirði, Sveitarfélaginu Ölfus, Árborg, Rangárþingi eystra, Skeiða og Gnúpverjahreppi, Bláskógabyggð, Sauðárkróki, Skagaströnd Hvammstanga, Ísafirði, Patreksfirði, Hornafirði, Reykjanesbæ, Grindavík og nú síðast á Selfossi þann 15. júní.  Einnig voru heimsótt fjölmörg áhugaverð fyrirtæki, bæði ný og rótgróin.

Unnið verður úr niðurstöðum þessara funda og byggt á þeim í þeim tilgangi að efla atvinnulíf, nýsköpun og stuðning við þau fyrirtæki sem þegar hafa haslað sér völl og vilja leggja í arðbærar fjárfestingar. Miklir möguleikar eru á sviði rannsókna, nýsköpunar og ferðaþjónustu víða um land og áberandi kröftug uppbygging á þeim sviðum. Sem dæmi má nefna þekkingarsetrið Nýheima á Hornafirði þar sem þeir sem koma að rannsóknum og nýsköpum vinna undir sama þaki. Þar hefur myndast öflug samstaða sem orðið getur drifkraftur nýsköpunar á svæðinu. Landsbankinn hefur frá því í febrúar haldið fjölda funda um land allt, fyrst opna fundi, þá fundi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, einnig upplýsingafundi fyrir almenning undir heitinu Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld og nú síðast þessa fundi með forsvarsmönnum í sveitarfélögum á landsbyggðinni.

Nærri lætur að 3500 manns hafi sótt þessa fundi bankans. Þessi vegferð Landsbankans byggir á nýrri stefnu hans sem mótuð var á síðasta ári  þar sem m.a. kemur fram að bankinn ætli sér að vera hreyfiafl í samfélaginu. Ofangreindir fundir voru á aðgerðarlista bankans sem birtur var í febrúar. Á honum eru 28 loforð sem bankinn ætlar að efna fyrir 1. júlí.

Fleiri fréttir