Landsbyggðarflokkurinn stofnaður um helgina

Landsbyggðarflokkurinn var stofnaður sl. laugardag en stofnfundurinn var haldinn á netinu með þátttakendum víða á landinu. Á fundinum samþykkti flokkurinn að skora á Alþingi Íslendinga að setja strax lög um flýtiframkvæmdir á þeim vegum sem hafa orðið útundan í samgönguframkvæmdum undanfarinna áratuga og eru svo illa úr garði gerðir að þeir þola ekki eðlilega vöruflutninga.

Í ályktun frá hinum nýja stjórnmálaflokki segir að það felist mikil skerðing á lífsgæðum íbúanna að búa við slíkt ástand og mikil samkeppnishindrun fyrir fyrirtæki sem háð eru flutningi um slíka vegi.

Nú þegar stofnfundur Landsbyggðarflokksins stendur yfir er heill landsfjórðungur, Vestfirðir, lokaðir eðlilegum vöruflutningum. Einnig eru víðtækar þungatakmarkanir á Snæfellsnesi, hluta af Norðurlandi og á Austurlandi. Engar þungatakmarkanir eru í grennd við Reykjavík. Ástand þetta er ekki til komið vegna náttúrhamfara eða verulega óvenjulegra aðstæðna.

Alþingi hefur látið hjá líða að veita fé til Vegagerðarinnar til þess að hún geti sinnt eðlilegu hlutverki sínu, sem er að samfélagið gangi án verulegra samgönguhindrana. Landsbyggðarflokkurinn krefst úrbóta strax,“ segir í ályktuninni.

Á fundinum var samþykkt að kjósa bráðabirgðastjórn fram að framhaldsstofnfundi sem haldinn verður innan tveggja vikna. Hlutverk bráðabirgðastjórnar verður að vinna frekar að samþykktum og stjórnmálayfirlýsingum flokksins og framboði hans til alþingiskosninga á komandi vori.

Þau sem kosin voru í bráðabirgðastjórn eru:
Magnús Hávarðarson Ísafirði
Gunnar Smári Helgason Siglufirði
Haukur Már Sigurðarson Patreksfirði
Árni Björnsson Egilsstöðum
Ylfa Mist Helgadóttir Bolungarvík

Fleiri fréttir