Landsbyggðin Lifi heldur aðalfund og málþing á Vesturlandi
Aðalfundur grasrótarfélagsins Landsbyggðin Lifi, verður haldinn laugardaginn 27. október nk. klukkan 14 í Nesi í Reykholtsdal í Borgarfirði. Þar verða venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál á dagskrá, m.a. umræða um skort á byggðastefnu, samgöngumál og ungliðaverkefni.
„Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í aðalstjórn eða varastjórn er bent á að hafa samband við Sigríði Svavarsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins á netfangið siggasvavars@hive.is og sími 452-4472 / 863-9632.“
Málþing verður í Nesi fyrir hádegi, frá kl. 10:00 - 13:00. Þar verður rætt um skort á byggðastefnu – hvert viljum við stefna?, Samgöngumál innanlands, flugvöll í Reykjavík (Ómar Ragnarsson) og ungliðaverkefni. Allir velkomnir.