Landskeppni og dómaranámskeið um næstu helgi
Landskeppni smalahundafélags Íslands verður haldið á Vorboðavelli við Blönduós helgina 1.-2. nóvember. Keppt verður í A flokki, opinn flokkur og fyrir þá hunda sem hafa fengið 50 stig eða meira í B flokki, B flokki, fyrir hunda sem ekki hafa náð 50 stigum og unghundaflokki, fyrir hunda yngri en 3ja ára. Frá þessu er greint á huni.is.
Dómari verður Mosse Magnusson frá Skotlandi og honum til aðstoðar kona hans Lotta. Keppnin hefst á unghundum laugardaginn 1. nóvember kl. 10:00. Skráningar fara fram hjá Bjarka í síma: 8480038 og Aðalsteini í síma: 8653910 fyrir fimmtudaginn 30. október.
Í tengslum við landskeppnina verður haldið dómaranámskeið föstudaginn 31. október frá kl. 13:00-17:00. Á námskeiðinu mun Mosse Magnusson fara ítarlega yfir keppnisreglur ISDS og fyrir hvað er dæmt í formi fyrirlesturs og sýnidæma á myndböndum. Nauðsynlegt er fyrir alla sem vilja að fá yfirsýn í störf dómarans jafnt keppendur sem og brekkudómara.