Landsmót í leirdúfuskotfimi á Blönduósi
Dagana 23.-24. júlí næstkomandi verður haldið landsmót í leirdúfuskotfimi á skotsvæði Skotfélagsins Markviss á Blönduósi þar sem gera má ráð fyrir að allir bestu skotmenn landsins mæti til keppni. Er þetta afbragðs tækifæri fyrir áhugafólk um skotfimi til að koma á svæðið og fylgjast með þeim bestu í greininni.
Markviss fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli félagsins og verður þeim tímamótum fagnað að afloknum fyrri keppnisdegi. Forsvarsmenn Markviss vilja minna á opnunartíma félagsins en æfingar eru á miðvikudagskvöldum og hefjast kl.20.00