Landsmótsnefndin fundar á Blönduósi í kvöld

Landsmótsnefndin svokallaða sem starfar innan Landssambands hestamanna hefur síðustu tvær vikur fundað á Hornafirði, Egilsstöðum, Akureyri, Hvanneyri, Hvolsvelli og í Reykjavík og kynnt skýrslu sem byggir á niðurstöðum nefndarmanna um málefni landsmóta. Fundaröðinni lýkur á Blönduósi í kvöld 13. september með fundi í reiðhöllinni Arnargerði kl. 20:00.

 

Á heimasíðu LH segir að Landsmótsnefndin sé ánægð með þá fundi sem haldnir hafa verið og hvetur hún alla hestamenn til að mæta á fundinn og taka þátt í málefnalegum umræðum um málefni landsmóta, koma með fyrirspurnir og tjá skoðanir sínar. Hestamenn á Norðurlandi vestra ættu að fjölmenna á fundinn á Blönduósi, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í skemmtilegum umræðum um landsmót framtíðarinnar.

Fleiri fréttir