Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar

Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn verður á Sauðárkróki mánudaginn 22. ágúst n.k. verður í fyrsta sinn veitt viðurkenning undir heitinu „Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“.

Í fréttatilkynningu frá Byggðastofnun segir; "Það er von okkar að slíkur viðburður gefi jákvæða mynd af landsbyggðinni og af starfi stofnunarinnar. Viðurkenningin er hvatning og einskonar bjartsýnisverðlaun, því hugmynd að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.

Nokkur svipuð verkefni eru í gangi og sum hver hafa fastan sess, til dæmis nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Íslandsstofu, maður ársins og kona ársins, umhverfisverðlaun Ferðamálastofu, hvatningarverðlaun landshlutasamtaka eða atvinnuþróunarfélaga og Eyrarrósin sem Byggðastofnun stendur að ásamt Listahátíð og Flugfélagi Íslands. Sum þeirra einskorðast við ákveðin málaflokk eða þátttakendur. Samfélagsviðurkenningin er hins vegar þvert á málaflokka og opin öllum.

Viðurkenningin skal veitt einhverjum þeim sem hefur vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með öðru móti. Viðkomandi gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags. Um getur verið að ræða einstakling, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag.

Viðurkenningin er auglýst í blöðum og á heimasíðu stofnunarinnar og hver sem er getur komið með ábendingu. Dómnefnd velur síðan úr. Við valið var haft í huga hvort viðkomandi hafi:

- gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði

- aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu

- orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til

- dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Sá sem viðurkenninguna hlýtur verður afhentur listmunur hannaður af glerlistakonunni Berglindi Kristjánsdóttur í Vestmannaeyjum."

Fleiri fréttir