Landsvirkjun hefur ákveðið að styrkja Húnabyggð um 5.000.000kr. vegna hönnunar á nýrri göngubrú yfir ósa Blöndu.
Til hefur staðið að láta hanna göngubrú yfir ósinn en verkefnið hefur ekki farið af stað þar sem ekki hafa fengist til þess styrkir hingað til. Með þessum styrk verður mögulegt að hefja hönnun verkefnisins. Þetta kemur fram í fundargerð byggðarráðs Húnabyggðar.
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf, Lokað efni 25.05.2026
kl. 14.05 oli@feykir.is
Á ársfundi HSN 20. maí sl. voru í fyrsta sinn veittar viðurkenningar til starfsfólks sem hefur skarað fram úr í starfi og lagt sitt af mörkum til að gera HSN að enn betri vinnustað og öflugri þjónustuveitanda. Viðurkenningin ber heitið Fyrirmyndin okkar.
„Ég verð að viðurkenna vanþekkingu mína á Evrópusambandinu sem hér er að verða bara æpandi greinilega. Vegna þess að ég kannast ekki við ummæli Evrópusambandsins eða framkvæmdastjórnarinnar varðandi það að íslenzk stjórnsýsla sé of lítil til þess að geta tekizt á við Evrópusambandsaðild,“ sagði Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum á Alþingi í vikunni um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði um sambandið.
feykir.is
Skagafjörður, Tón-Lystin, Lokað efni 25.05.2026
kl. 08.55 oli@feykir.is
Að þessu sinni er það Heiðdís Pála Áskelsdóttir sem svarar Tón-lystinni en það skortir ekki tónlistaráhugann í hennar fjölskyldu. Hún er alin upp í Skagafirðinum, fædd árið 2008 og búin að búa á Króknum allt sitt líf. Foreldrarnir eru Vala Bára Vals og Bræðslubóndinn Áskell Heiðar frá Borgarfirði eystri. Nú stundar Heiðdís Pála nám við Menntaskólann á Akureyri og býr á vistinni.
Lið Kormáks/Hvatar og Tindastóls spiluðu bæði gær í fótboltanum. Húnvetningar gátu loks spilað á Blönduósi og þar lögðu þeir lið Kára frá Akranesi 4-1 eftir að hafa lent undir um miðjan fyrri hálfleik. Stólarnir töpuðu sínum fyrstu stigum á Egilsstöðum þar sem þeir gerðu markalaust jafntefli við lið Hattar.
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning 24.05.2026
kl. 20.49 oli@feykir.is
Sumarsýning eða sérsýning Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi þetta sumarið, Hadda – leikur með þræði, verður opnuð 25. maí (annan í hvítasunnu) kl. 15:00.
„Ég verð að viðurkenna vanþekkingu mína á Evrópusambandinu sem hér er að verða bara æpandi greinilega. Vegna þess að ég kannast ekki við ummæli Evrópusambandsins eða framkvæmdastjórnarinnar varðandi það að íslenzk stjórnsýsla sé of lítil til þess að geta tekizt á við Evrópusambandsaðild,“ sagði Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum á Alþingi í vikunni um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði um sambandið.
Formenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar, Öldunnar og Samstöðu hafa undanfarið kannað möguleika á sameiningu þessara þriggja félaga. Búið er að ræða stöðu og getu sjóða félaganna og möguleika á að standa við skuldbindingar ef af sameiningu yrði. Engin atriði hafa komið upp sem eru líkleg til að standa í vegi fyrir sameiningu.
Knattspyrnusamband Ísland og Ungmennafélag Íslands hafa nú tekið höndum saman um að kynna göngufótbolta fyrir landsmönnum. Göngufótbolti er ört stækkandi íþróttagrein og hefur verið stundaður um allan heim í nokkur ár og er t.d. orðinn mjög vinsæll í Danmörku. Hann hefur verið stundaður hér á landi við góðar undirtektir og eru kostirnir við hann þeir að um afar einfalda íþrótt er að ræða, allir geta tekið þátt á sínum forsendum. Reglurnar eru einfaldar, það má ekki hlaupa, bara ganga. Spilað er á litlum velli og eina sem þarf eru tvö mörk og fótbolti.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Ingunn Kristjánsdóttir, fædd árið 1990, er Króksari í húð og hár en foreldrar hennar eru Sigríður Margrét Ingimarsdóttir og Kristján Örn Kristjánsson. Ingunn hefur stundað nám í Bandaríkjunum síðustu árin og útskrifaðist með bachelor í sálfræði frá University of Florida í maí 2014 og stundar nú mastersnám í atferlisfræði við University of the Pacific í Stockon í Kaliforníu. Hún spilar smá á gítar en segist vera alveg „...pro á hristur en annars er það bara röddin sem er mitt aðal hljóðfæri.“ Hún söng sitt fyrsta lag inn á plötu árið sem hún fermdist. „En ætli það standi ekki uppúr að hafa verið í öðru sæti í söngkeppni framhaldsskólanna 2008 og svo var ég auðvitað í hljómsveitinni Batterý og SENSE – good times!“