Langar þig í Vinnuskólann í sumar?
Vinnuskóli Blönduóss starfrækir vinnuskóla í sumar fyrir unglinga fædd á árunum 1995- 1998. Á heimasíðu Blönduósbæjar segir að upplýsingar og umsóknareyðublöð hafi verið send heim til allra í gegnum Mentor.
Umsóknareyðublaðið er einnig á heimasíðu Blönduósbæjar undir "eyðublöð". Umsóknarfrestur er til 19. maí 2011 og ber að skila þeim á bæjarskrifstofuna. Umsjónarmaður Vinnuskólans í sumar er Óskar Þór Ársælsson og veitir hann nánari
upplýsingar í síma 844 9621.