Laus staða hjá BioPol ehf

Á nýrri og glæsilegri heimasíðu BioPol ehf., Sjávarlíftækniseturs á Skagaströnd kemur fram að BioPol og Háskólinn á Akureyri óska eftir að ráða sérfræðing á sviði líftækni, líffræði eða einstakling með sambærilega menntun.

Umsækjanda er ætlað að stunda rannsóknir og kennslu á sviði sjávarlíftækni. Sérstaklega er horft til rannsókna á örverum, dýra- og plöntusvifi með hagnýtingu í huga. Einnig er viðkomandi ætlað að móta og byggja upp frekari rannsóknir á þessu sviði. Starfsstöð umsækjanda verður á Skagaströnd.

Hæfniskröfur: Meistara eða doktorspróf í fyrrgreindum fræðigreinum. Reynsla af rekstri og uppsetningu rannsóknaverkefna. Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun, starfsreynslu og meðmælendur berist BioPol ehf., Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd. Hæfi umsækjanda verður metið eftir reglum Háskólans á Akureyri.

Fleiri fréttir