Lax-á áfram með Blöndu og Svartá

Pétur Pálsson með lax úr Blöndu. Mynd: angling.is.
Pétur Pálsson með lax úr Blöndu. Mynd: angling.is.

Stangveiðifélagið Lax-á mun áfram sjá um söluveiðileyfa í Blöndu og Svartá næstu fimm árin. Samstarfið, sem staðið hefur frá síðustu aldamótum hefur nú verið framlengt, eins og fram kemur á vef Lax-ár. Blanda hefur dafnað vel á tímabilinu og skemmst er að minnast metveiði í ánni síðasta sumar.

„Við hjá Lax-á munum áfram hlúa að ánni eins og best verður á kosið og höfum stigið fyrstu skrefin nú í sumar með örlítið hertari veiðireglum. Við erum ákaflega ánægð með að fá að bjóða veiðimenn áfram velkomna á bakka Blöndu og Svartár sem eru eitt af betri veiðisvæðum á landinu,“ segir á vefnum Lax-á.

Fleiri fréttir