Laxasetur Íslands hættir rekstri sýningar

Laxasetur Íslands að Efstubraut 1, Blönduósi. Ljósm./BÞ
Laxasetur Íslands að Efstubraut 1, Blönduósi. Ljósm./BÞ

Laxasetur Íslands, sem opnað var að Efstubraut 1 í júní 2010, hefur hætt rekstri. Á Húna.is segir að ákvörðun um það hafi verið tekin á aðalfundi félagsins í síðasta mánuði. Skýringin er að reksturinn hefur ekki gengið sem skyldi þrátt fyrir ýmsar tilraunir, samkvæmt tilkynningu frá stjórn Laxasetursins.

„Á aðalfundi Laxaseturs Íslands þann 28. október síðastliðinn var ákveðið að hætta rekstri sýningarinnar að Efstubraut 1. Reksturinn hefur ekki gengið sem skyldi þrátt fyrir ýmsar tilraunir til að renna styrkari stoðum undir hann. Fyrir hönd Laxasetursins vil ég þakka þeim einstaklingum og félögum sem lögðu okkur lið í uppbyggingu og rekstri,“ segir í tilkynningu frá Jóni Aðalsteini Sæbjörnssyni, formanni Laxaseturs Íslands ehf., fyrir hönd stjórnar Laxasetursins.

 

 

Fleiri fréttir