Laxinn stökk sjálfur í land í Hallá

Veiðimaður sem staddur var í Hallá við Skagaströnd í lok ágúst sá nokkra laxa en náði ekki að setja í þá. Einn laxinn sá þó aumur á honum og gekk sjálfur á land. Um þetta má lesa á Agn.is.

„Við heyrðum í veiðimanni sem skaust í Hallá og veiddi eina kvöldvakt þegar farið var að líða á síðari hluta ágúst mánaðar. Kvaðst hann hafa mætt hóflega bjartsýnn að veiðihúsinu eftir allar þær hamfarafréttir sem hafa dunið á okkur þetta árið,“ segir á Agn.is

Á heimasíðunni segir að það hafi komið veiðimanninum nokkuð á óvart að sjá að búið væri að skrá töluvert marga laxa í veiðibókina. Þeir sem höfðu veitt daginn áður en hann var á ferðinni höfðu landað tveimur 14 punda löxum, báðum nýgengnum og lúsugum. Það var því einhver von til staðar.

Þegar veiðimaðurinn var kominn að ánni sáust fljótlega nokkrir laxar neðarlega í ánni. Eftir að 2-3 flugum hafði verið kastað á þá komst styggð að löxunum, fóru þeir að hringsóla um hylinn og tóku loks strikið niður ánna og hurfu sjónum. Þá segir að heldur betur hafi borið til tíðinda.

„Um það bil 50 metrum neðar lenti einn laxinn á mjög grunnu vatni og spriklaði sjálfur á land. Þetta var eini laxinn sem kom á land þann daginn en okkur heyrðist á veiðimanninum að hann hefði svo sannarlega verið betri en enginn,“ segir á Agn.is.

Að öðru leiti var Hallá ágæt í ágúst og nokkuð til af lausum haustdögum, samkvæmt heimasíðunni, en þar eru komnir um 60 laxar á land þrátt fyrir að áin hafi fundið vel fyrir þessu mikla þurrka sumri og hafi verið hóflega ástunduð þetta sumarið.

Fleiri fréttir