Laxnes og ljúflingslög í Hólaneskirkju

Tónleikar verða haldnir í Hólaneskirkju föstudagskvöldið 18. október 2013 og hefjast þeir klukkan 20:30. Tónleikarnir bera nafnið Laxnes og ljúflingslög og eru flytjendur listafólkið Arnhildur Valgarðsdóttir píanóleikari, Íris Dögg Gísladóttir, fiðluleikari, Gunnhildur Davíðsdóttir söngkona og Særún Harðardóttir sópransöngkona.

Fyrri hluti tónleikanna er helgaður nóbelskáldinu Halldóri Laxnes. Arnhildur og Særún flytja lög við texta skáldsins úr bókinni Heimsljós og tengja ljóðin við bókina með upplestri milli laga. Í síðari hluta tónleikanna verða flutt létt og leikandi lög sem allir þekkja. Tónleikarnir eru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli.

Fleiri fréttir