Leiðindaveður í kortunum
Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun fyrir daginn en búist er við stormi á Vestfjörðum, Norðvesturlandi og sunnanverðu Snæfellsnesi.Vegna þessa má einnig búast við leiðinlegu ferðaveðri á norðurhelmingi landsins í dag. Samkvæmt spánni verður norðaustan 13-23 m/s, hvassast á annesjum og á Ströndum en 10-18 m/s í kvöld og 8-13 m/s síðdegis á morgun. Slydda eða snjókoma en úrkomuminna á morgun. Hiti 0 til 3 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Hæg suðaustlæg átt, 5-10 m/s á vestanverðu landinu og slydda eða snjókoma og hiti kringum frostmark en hæg austanátt austantil, úrkomulítið og vægt frost.
Á fimmtudag:
Austan 3-10 m/s, dálítil slydda syðst, en annars víða bjart með köflum. Frostlaust með suðurströndinni en annars frost 0 til 5 stig að deginum.
Á föstudag:
Hæg austlæg átt og víða bjart veður. Heldur kólnandi.
Á laugardag:
Suðaustan 5-10 m/s SV-til og dálítil slydda eða snjókoma, annars hæg breytileg átt og bjart að mestu. Áfram kalt í veðri.
Á sunnudag:
Suðaustan 5-13 m/s og víða dálítil slydda eða snjókoma. Heldur hlýnandi.