Leiðsögunám áformað næsta vetur

Farskólinn hyggst bjóða upp á svæðisleiðsögunám á Norðurlandi vestra á næsta skólaári. Mynd: KSE
Farskólinn hyggst bjóða upp á svæðisleiðsögunám á Norðurlandi vestra á næsta skólaári. Mynd: KSE

Næsta skólaár verður boðið upp á svæðisleiðsögunám á Norðurlandi vestra, ef nægur áhugi reynist fyrir hendi. Verða þá 20 ár síðan síðast var boðið upp á námið á þessu svæði.

Kennt verður samkvæmt námskrá Leiðsöguskóla MK. Námið, sem stendur yfir í tvær annir, telur alls 23 einingar og verður kennt í fjarnámi og nokkrum staðlotum. Markmið þess er að búa nemendur undir að fylgja ferðamönnum um Norðurland vestra.

Námið er víðfeðmt og er m.a. fjallað um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður og dýralíf, atvinnuvegi, íslenskt samfélag, bókmenntir og listir. Nemendur fræðast um helstu ferðamannastaði a Norðurlandi vestra, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál og leiðsögutækni. Námið verður nánar auglýst í ágúst en upplýsingar og skráningar eru gegnum netföngin halldorb@farskolinn.is og david@ssnv.is

Fleiri fréttir