Leikdagskrá um Agnesi og Friðrik endurflutt

Á vef Húnahornsins í dag er sagt frá því að á næstunni muni Útvarpsleikhúsið á Rás1 endurflytja hina dramatísku þáttaröð um morðið á Natani Ketilssyni og Fjárdráps-Pétri, og dómum og aftöku á sakamönnunum Agnesi Magnúsdóttur og Friðriki Sigurðssyni. Um er að ræða leikdagskrá í þremur hlutum eftir Klemenz Jónsson og undir stjórn hans frá árinu 1991. Verður dagskráin flutt sunnudagana 30. mars, 6. apríl og 13. apríl, klukkan 13:00.

Hreinn Valdimarsson sá um hljóðvinnslu og tónlistarval. Flytjendur eru: Hjörtur Pálsson, Þorsteinn Gunnarsson, Rúrik Haraldsson, Sigurður Skúlason, Klemenz Jónsson, Kristbjörg Kjeld, Ragnheiður Steindórsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og kvæðamenn úr Kvæðamannafélaginu Iðunni undir stjórn Njáls Sigurðssonar.

Fleiri fréttir