Leikfélag Blönduóss hættir við leiksýningu

Stjórn Leikfélags Blönduóss hefur að vandlega yfirveguðu máli tekið ákvörðun um að leggja til hliðar um sinn fyrirhugaða uppfærslu á leikriti þetta starfsárið. 

Í bígerð var metnaðarfull sýning og hafði leikstjórinn Jakob S. Jónsson verið fenginn til að starfa með félaginu. Því miður er það mat stjórnar að ekki séu nægilega sterkar forsendur til að ráðast í svo stórt verkefni.

Félagið vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem sýndu verkefninu áhuga og voru tilbúin að leggja því lið og vonast eftir starfskröftum þeirra í framtíðinni.  Jafnframt er Jakobi þakkað fyrir stutt en gott starf í þágu félagsins og megi það verða upphafið að frekara samstarfi.

/Stjórn L.B.

 

Fleiri fréttir