Leikfélag Blönduóss með nýjan leikstjóra
Leikstjórinn Jakob S. Jónsson hefur gengið til liðs við Leikfélag Blönduóss. Allir sem hafa áhuga á að starfa með félaginu er hvattir til að mæta með góða skapið í Félagsheimilið kl. 20:00 þriðjudaginn 7. febrúar, segir á Húnahorninu.
Jakob ætti að vera Norðvestlendingum kunnugur en hann leikstýrði gamanleiknum Svefnlausa brúðgumann í uppfærslu Leikfélags Sauðárkróks í sl. vor.
Nánari upplýsingar um Jakob má finna á vefsíðunni leikstjórar.is.