Leikskólavist fimm ára barna gjaldfrjáls fyrir hádegi

Námsstyrkur fyrir árið 2012 á hvern framhaldsskólanema sem lögheimili á í Húnavatnshreppi verður óbreyttur frá fyrra ári en áætlað er að námsstyrkir vegna tónlistarnáms á framhaldsskólastigi vegna vorannar 2012 geti numið í heild allt að 500 þúsund kr. samkvæmt því sem kom fram á fundi hreppsnefndarinnar  í síðustu viku. Þá verða launakjör hreppsnefndar, annarra nefnda, fjallskilastjóra og oddvita yrðu óbreytt frá fyrra ári.

 

 

Eftirfarandi samþykkt var gerð um gjaldskrá fyrir leikskólann Vallaból, sem gildir frá 1. janúar 2012:

Grunngjöld á mánuði.

Gjaldskrá:

  • Tímagjald: kr. 1.000
  • Vistunargjald fyrir börn einstæðra foreldra kr. 750
  • Afsláttargjald 2. barn kr. 750
  • Afsláttargjald 3. barn kr. 500
  • Morgunverður: kr. 2.000
  • Nónhressing: kr. 2.000
  • Hádegismatur: kr. 5.000

Á vorönn 2012 er leikskólavist fimm ára barna gjaldfrjáls fyrir hádegi en greitt er fyrir fæði barnanna.

Fleiri fréttir