Leikskólinn Barnaból 36 ára í dag
Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd á 36 ára afmæli í dag, 7. júní 2013.
Árið 1977 opnaði leikskólinn Barnaból sem var góð þróun fyrir samfélagið. Í dag er leikskólinn 1. skólastigið í íslensku skólakerfi og fer þar fram gott og metnaðarfullt mennta- og uppeldisstarf sem byggir á aðalnámskrá leikskóla.
Í tilefni 36 ára afmæli skólans verður heitt á könnunni yfir leikskóladaginn. Skagaströnd.is segir frá þessu.