Leitað að ísbirni á Vatnsnesi
Mbl.is greinir frá því að ítalskir ferðamenn tóku myndir af dýri sem þau telja að sé ísbjörn á sundi stutt frá bænum Geitafelli á Vatnsnesi í Vestur Húnavatnssýslu og mun lögregla vera mætt á svæðið og er að svipast um eftir dýrinu. Þyrla Gæslunnar hefur verið kölluð út.
Haft er eftir Snæbirni Helga Arnarssyni frá Geitafelli að fólkið hafi tekið myndir af einhverju sem leit út fyrir að vera ísbjörn að synda í hafinu. -Þetta leit út eins og ísbjörn, en bóndinn á næsta bæ segir hugsanlegt að þetta hafi verið útselur. Mér finnst sennilegra að þetta sé ísbjörn,“ segir Snæbjörn sem skoðað hefur myndirnar ásamt heimamönnum.
Að sögn lögreglu á Blönduósi er verið að svipast um á svæðinu, en menn hafi ekki komið auga á neinn ísbjörn.
Sennilega þarf ekki að minna á að tveir hvítabirnir voru felldir í Skagafirði sumarið 2008 og tveir til viðbótar þar á eftir, sá fyrri í Þistilfirði í janúar 2010 en sá síðari á Hornströndum í fyrra.
Heimild: Mbl.is