Leitað að tveimur konum til þátttöku í Evrópuverkefni
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, leita nú að tveimur konum til þess að taka þátt í Evrópuverkefni sem hefur það að markmiði að bjóða frumkvöðlakonum í dreifðum byggðum að byggja upp hæfni þeirra og færni til að efla fyrirtæki þeirra og víkka út tengslanet þeirra, bæði heima fyrir og í Evrópu. Verður það gert með því að aðlaga að netinu aðferðafræði persónulegra þjálfunarhringja (Enterprise Circles™). Það hefur reynst gagnlegt í því að styðja konur til að efla sjálfstraust og einnig til að gefa þeim hagnýtar aðferðir sem eru nauðsynlegar í rekstri.
Í tilkynningu á heimasíðu SSNV segir að markhópur verkefnisins séu konur sem eru að huga að stofnun fyrirtækis, konur sem nýlega hafa stofnað fyrirtæki og frumkvöðlakonur á Norðurlandi vestra.
Nauðsynlegt er að þátttakendur geti skuldbundið sig til að taka þátt í hæfnihringjum einu sinni í viku í alls fjórar vikur. Öll fræðsla er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Sveinbjörgu Pétursdóttur, atvinnuráðgjafa SSNV, á sveinbjorg@ssnv.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.