„Léttur baráttuhugur í fólki“

Heimssýn-hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, Ísafold-félag ungs fólks gegn aðild að ESB og Herjan hafa staðið fyrir fundum undir yfirskriftinni „Nei við ESB.“ Í gær var fundað á Sauðárkróki og í kvöld á Blönduósi. „Það er léttur baráttuhugur í fólki,“ sagði Jón Bjarnason, formaður Heimssýnar, eftir fundinn.

„Það var mikill hugur og hvatning í fundarmönnum um að staðið yrði við afturköllun umsóknar að ESB,“ sagði Jón Bjarnason eftir fundinn. „Það er mjög afdráttarlaus og einlægur vilji hjá fólki að fara ekki í ESB og leika sér að þeim eldi. Fólk vill ekki framselja fullveldið, þrátt fyrir þúsundir blaðsíðna af skýrslum.“

Aðspurður sagðist Jón vera bjartsýnn á að umsóknin yrði afturkölluð, en hann hefur lýst því yfir að hann hafi kosið að verja baráttuþreki sínu í þetta hjartans mál, og af því þreki sé nóg eftir. „Það er í raun engin önnur heiðarleg leið heldur en að afturkalla umsóknina, hvorki gagnvert þjóðinni né öðrum þjóðum,“ sagði Jón.

Erna Bjarnadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, var meðal frummælenda á fundinum.

Gisli Árnason framhaldsskólakennari talaði um að ekki væri hægt að "kíkja í pakkann" þegar aðildarumsókn að ESB væri annars vegar.

Frá fundinum á Sauðárkróki í gærkvöldi.

Fleiri fréttir