Líf og fjör á jólamóti Hvatar í knattspyrnu
Krakkar úr Húnavatnssýslunum komu saman á Blönduósi í síðustu viku til að spila fótbolta. Þarna voru á ferðinni krakkar í 6. og 7. flokki og komu þau frá Blönduósi, Skagaströnd og Húnaþingi vestra. Samkvæmt heimasíðu Hvatar var mikið líf og fjör í Íþróttamiðstöðinni og leikgleðin skein úr andlitum barnanna.
Foreldrarnir skemmtu sér vel á áhorfendapöllunum en áherslan var lögð á að vera með heldur en úrslit. Eftir leikina var boðið upp á pylsur og svala þannig að allir fóru þreyttir og saddir heim að loknu flottu móti, segir á heimasíðunni.