Lifandi listviðburður í Nes listamiðstöð

Listamennirnir Georgina Criddle og Dario Lazzaretto kynna hljóðlistaverk sitt Soundscapes - Hljóðsýn og Conjunction - Samspil í opnu húsi hjá Nesi listamiðstöð á morgun, fimmtudaginn 27. október.

Georgina Criddle frá Ástralíu og Dario Lazzaretto frá Ítalíu mun sýna ný verk sem þau hafa verið að vinna að undanfarnar vikur á Skagaströnd. Þau munu sýna videoverk, hlóðverk, skúlptúra og fleira. Sýninguna Samspil settu þær Georgina Criddle og Annika Bastacky upp og notuðu til þess verk sem listamenn sem dvalið hafa í Nesi hafa gefið Sveitarfélaginu Skagaströnd og ýmsa smáhluti sem þær fundu í listamiðstöðinni. Hér má sjá heimasíður Dario LazzarettoAnnika Bastacky og Georginu Criddle .
Hljóðsýn og samspil eru lifandi listviðburðir sem áhugavert er að skoða og upplifa. Húsið verður opið frá kl. 15 – 20.

Fleiri fréttir