Lifandi tákn jólanna
Á vefnum Í boði nátturunnar segir að Jólastjarna, eða jólarós, (e. Euphorbia pulcherrima) sé án efa frægasta jólaplantan og vinsæll kostur til að skreyta á aðventunni. Fáir vita að jólastjarnan er runnategund upprunninn í Mexíkó. Þar vex hún víða villt og getur orðið yfir fjórir metrar að hæð. Ræktun pottaplöntunnar, sem við þekkjum, fer þó fyrst og fremst fram í gróðrarstöðvum, sem sérhæfa sig í að láta hana blómgast á réttum tíma fyrir jólavertíðina.
Þjóðsaga verður til
Í Mexíkó nefnist jólastjarnan „La Flor de la Nochebuena“ eða blóm hinnar heilögu nætur og ættir hennar má rekja til mexíkanskrar þjóðsögu frá 16. öld. Til eru nokkrar útgáfur af sögunni en í megindráttum fjallar hún um litla fátæka stelpu sem átti ekkert til að færa Jesúbarninu eins og hefð var fyrir í kirkjunni hennar á aðfangadagskvöld. Henni barst þá boð frá engli um að tína grös við vegkantinn á leiðinni til kirkju til að færa Jesúbarninu. Þegar hún lagði grænu grösin við jötuna breyttu þau um lit og urðu fagurrauð. Eins og fyrir kraftaverk varð Jesúbarnið í jötunni umkringt rauðum jólastjörnum en lögun háblaðanna minnti á stjörnu, sem þótti táknrænt fyrir Betlehemsstjörnuna og rauði liturinn fyrir blóð Jesú Krists.
Frá Mexíkó til Bandaríkjanna
Í Bandaríkjunum er jólastjarnan kölluð „Poinsettia“ í höfuðið á Joel Roberts Poinsett, fyrsta sendiherra Bandaríkjanna í Mexíkó, snemma á nítjándu öld. Hann var mikill plöntuáhugamaður, sem heillaðist af jólastjörnunni þegar hann bjó í Mexíkó. Hann flutti með sér sýnishorn til Kaliforníu til að kynna fyrir löndum sínum. Markviss ræktun poinsettiunnar hófst síðan hundrað árum síðar í Bandaríkjunum. Í upphafi tuttugustu aldar hóf Ecke-fjölskyldan að rækta plöntuna á landi sínu nálægt Encinitas í Kaliforníu, í þeim tilgangi að selja fyrir jólin. Markmiðið var að gera poinsettiuna að „lifandi tákni jólanna“ og lagði fjölskyldan mikið á sig við kynningu hennar. Upphaflega voru ræktaðar stórar plöntur, sem klipptar voru niður en smám saman tókst að framrækta hana sem pottaplöntu. Jólastjarnan hefur verið ræktuð af Ecke-fjölskyldunni alla tíð síðan og ræður hún yfir um 70% af jólastjörnumarkaðinum í Bandaríkjunum og um helmingi heimsframleiðslunnar.
Umhirða
Jólastjarnan er mjög viðkvæm fyrir kulda. Því er nauðsynlegt að halda á henni hita á leiðinni heim úr búðinni, svo hún felli ekki háblöðin of snemma. Um leið og heim er komið er gott að vökva hana vel með volgu vatni og losa hana strax úr umbúðum ef henni hefur verið pakkað inn.
Birta
Hún þarf góða birtu og dafnar best í sólríkum glugga.
Vökvun
Best er að vökva oft en lítið í einu. Ekki láta moldina þorna alveg þegar hún er í blóma en passa þarf líka að vatnið komist burt því hún má ekki standa í vatni.
Athuga
Margir halda að jólastjarnan sé eitruð og er illa við að hafa hana á heimilum þar sem lítil börn eða gæludýr eru. Það er ekki alveg rétt. En þó er gott að hafa í huga að mjólkursafinn í blöðunum inniheldur ertandi efni, sem getur valdið útbrotum á húð eða sviða ef hann kemst í snertingu við munn og augu. Ekki er heldur ráðlagt að borða blöðin þótt þau séu ekki hættuleg nema í mjög miklu magni.
Eftir jól
Þegar rauðu háblöðin falla leggst jólastjarnan í dvala. Plantan er ansi harðgerð og ef vel er hugsað um hana þá getur hún lifað í nokkur ár. En það kostar töluverða vinnu og þekkingu að fá hana til að blómgast aftur og varla þess virði nema fyrir mjög áhugasama. Við hin verðum að kaupa nýja jólastjörnu á hverju ári.
Fleiri fréttir
-
Emma Katrín mætt til leiks í Birmingham
Sumarstarfsmaður Feykis, Emma Katrín Helgadóttir, skottast nú um Birmingham-borg og spilar badminton. Reyndar ekki undir merki Feykis heldur Íslands en hún er einn af fulltrúum U19 landsliðs Íslands á All England Junior mótinu þessa dagana.Meira -
Friðrik ætlar að gera garðinn frægan á Unglinglandsmóti
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina. Reikna má með lífi og fjöri þar. Feykir heyrði í ungum manni sem ætlar að keppa á mótinu og lagði fyrir hann nokkrar spurningar.Meira -
Hvað er Húnavaka? | Kristín Jóna Sigurðardóttir svarar
Hér er það Kristín Jóna kennari á Blönduósi fræðir lesendur Feykis um leyndardóma Húnavöku.Meira -
Landsvirkjun hélt upp á 35 ára afmæli Blöndustöðvar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 15.07.2026 kl. 10.46 oli@feykir.isLandsvirkjun hélt upp á 35 ára afmæli Blöndustöðvar á laugardaginn og þótti hátíðin heppnast vel. Vígsla Blöndustöðvar árið 1991 markaði mikil tímamót í íslenskri raforkusögu. Blöndustöð er aflstöð Blönduvirkjunar, ein stærsta vatnsaflsvirkjun landsins, og var hún tekin í notkun eftir umfangsmiklar framkvæmdir sem hófust árið 1984.Meira -
Hvað er Húnavaka? | Ragnar Z svarar
Í tilefni Húnavöku lagði Feykir nokkrar krefjandi spurningar fyrir nokkra vel valda Húnvetninga. Fyrstur er Ragnar Z Guðjónsson, sem meðal annars stendur fyrir vefmiðlinum góða: Huni.is.Meira
