Light Rock – sýning í Frystinum gallerí Ness listamiðstöðvar

Light Rock – er innsetning eftir Kanadísku listamennina Roland Eickmeier and Shiloh Sukkau sem dvalið hafa í Nesi listamiðstöð síðan í byrjun nóvember. Sýningin verður opin í Frystinum gallerí Ness listamiðstöðvar að Fjörubraut 8 Skagaströnd fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 13 til 17.

Sýningin hófst í gær og stendur til 13.febrúar nk. og er hægt að hafa samband í síma 8987877 til að láta opna á öðrum tímum.

Fleiri fréttir