Líkamsárás á Skagaströnd
Tveir ungir karlmenn voru handteknir fyrir alvarlega líkamárás á Skagaströnd en árásin átti sér stað um hálfsexleytið í gærmorgun. Sá sem fyrir árásinni varð tilkynnti hana til lögreglu og liggur nú á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri, samkvæmt heimildum Mbl.is. Maðurinn er ekki í lífshættu og ástand hans talið stöðugt.
Á Mbl.is segir að brotist var inn á heimili karlmanns á áttræðisaldri og honum veittir alvarlegir áverkar á andliti og höfði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri tengist árásin kynferðisbrotamáli.
Mennirnir sem handteknir voru eru báðir tæplega tvítugir. Annar þeirra tengist manninum fjölskylduböndum. Þeir eru nú í haldi lögreglunnar á Akureyri, sem fer með rannsókn málsins.